ONNO

Þrívídd, myndir og hreyfimyndir

Hluti af framþróun fasteignaverkefna er að gera grein fyrir þeim á byrjunarstigum framkvæmda. Þá er frábært að geta sett verkefnið í sitt náttúrulega umhverfi og þar koma þrívíddar teikningar sterkar inn.

Úrval í þrívíddarvinnslu

Þrívíddarmyndir

Í gegn um tíðina höfum við fellt hvort sem er hús inn í sitt náttúrulega umhverfi eða heilu hverfin. Verkin sem við höfum komið að eru frá litlum hönnunarverkefnum að heilum hverfum. Fyrir söluverkefni gerum við valmyndir ásamt raungerðum myndum innan úr íbúðunum sem að verið er að byggja. Þannig geta kaupendur séð raunsanna sýndarmyndir þar sem íbúðir eru sýndar með réttum innréttingum, eldhús og blöndnartækjum.

Þrívíddarhreyfimyndir

Fyrir fallegt söluefni er gott að hafa myndefni sem býr yfir hreyfingu. Lifandi framsetning grípur augað og gefur söluefni aukið vægi.

Möguleikar eru á að búa til sýndarferð um íbúðir, sýna vel rými innanhúss og jafnframt til að sýna útlit húsa í smáatriðum. Þá er alltaf glæsilegt að fá hreyfimyndir af garðhönnun.

Þrívídd og kvikmyndun

Það hefur aukist hjá okkur að fella inn hús á efni sem er kvikmyndað. Það gefur umhverfinu eðliegt líf og einstakann veruleikablæ.

Hér til hliðar er hægt að sjá dæmi um hús sem eru sett inn í kvikmyndað efni bæði þar sem vélin er kyrr og þar sem hreyfing er á skotinu.

 

Þrívíddarverkefni:

Úrval möguleika í þrívíddarhreyfimyndum

Lifandi garðhönnun

Hægt er að setja hönnun á garði inn í samhengi með þrívídd.

Lifandi íbúðarhönnun

Þrívíddin gerir kleift að ferðast um íbúðir og eru dæmi um það hér fyrir neðan.