Í gegn um tíðina höfum við fellt hvort sem er hús inn í sitt náttúrulega umhverfi eða heilu hverfin. Verkin sem við höfum komið að eru frá litlum hönnunarverkefnum að heilum hverfum. Fyrir söluverkefni gerum við valmyndir ásamt raungerðum myndum innan úr íbúðunum sem að verið er að byggja. Þannig geta kaupendur séð raunsanna sýndarmyndir þar sem íbúðir eru sýndar með réttum innréttingum, eldhús og blöndnartækjum.
Fyrir fallegt söluefni er gott að hafa myndefni sem býr yfir hreyfingu. Lifandi framsetning grípur augað og gefur söluefni aukið vægi.
Möguleikar eru á að búa til sýndarferð um íbúðir, sýna vel rými innanhúss og jafnframt til að sýna útlit húsa í smáatriðum. Þá er alltaf glæsilegt að fá hreyfimyndir af garðhönnun.
Það hefur aukist hjá okkur að fella inn hús á efni sem er kvikmyndað. Það gefur umhverfinu eðliegt líf og einstakann veruleikablæ.
Hér til hliðar er hægt að sjá dæmi um hús sem eru sett inn í kvikmyndað efni bæði þar sem vélin er kyrr og þar sem hreyfing er á skotinu.
Hægt er að setja hönnun á garði inn í samhengi með þrívídd.
Þrívíddin gerir kleift að ferðast um íbúðir og eru dæmi um það hér fyrir neðan.